20 á lager, tilbúið til sendingar 🚚💨

Arctic Spas

Síuhólkur, ProFilters

14.500 ISK
Verð með virðisaukaskatti

Að sækja er í boði frá Fossháls 13

Vanalega tilbúið innan 1 klst.

Síuhólkur sem fer yfir ProFilters í Arctic Spas Custom Series pottum.

Deila / Vista á Pinterest

Upplýsingar um vöru

Standard (Blár) sían er staðsett vinstra megin, þegar litið er að utan frá inn í pottinn.

High Flow (Grænn) sían er staðsett hægra megin, þegar litið er að utan frá inn í pottinn.

Gott að muna þetta svona: Vinstri-Grænir eru EKKI vinstra megin!

ATH. Þetta gildir um alla Arctic Spas Custom Series potta NEMA Arctic Fox, þá er þetta öfugt!

Mælum með að skipta um ProFilters á 3-5 mánaða fresti. Fer eftir hversu mikil notkun er á pottinum.

Verðum að vera dugleg að muna eftir síuskiptum. Það er auðvelt að gleyma þessu, en mikilvægt að skipta reglulega um síur til að halda heilbrigðu vatni!

Góðar leiðir til að muna eftir síuskiptum:

1. Þegar skipt er um vatn í pottinum.

2. Setja áminning í síma eða tölvu.

3. Biðja okkur um að bjalla í þig.

Endist allt að 6 mánuði!

Til að hámarka líftíma:

1. Skolaðu af þér áður en farið er í pottinn. (ath. ekki nota sápu, bara skola)

2. Athuga reglulega hvort klór-/brómgildin séu í lagi.

3. Athuga reglulega hvort pH-gildi (sýrustig vatns) séu innan marka; 7,2-7,6.